|
Snyrtistofan Hrund var stofnsett 1979.
Hún er staðsett á besta stað í Kópavogi í verslunarmiðstöðinni Grænatúni 1. Næg bílastæði eru við snyrtistofuna. Boðið er upp á mjög afslappað andrúmsloft og þægilegt umhverfi, þannig að öllum líði vel bæði konum og körlum. Aðeins snyrtifræðingar og nuddari vinna á snyrtistofunni. Boðið er upp á alla almenna snyrtingu, Clarins andlitsbað og likamsmeðferðir,Guinot andlitsmeðferðir og líkamsmeðferðir, rafmagsháreyðingu, göt í eyru, brazilískt vax og förðun, nudd og heitsteinanudd og meðgöngunudd frá Clarins. Notaðar eru vörur frá Guinot, Clarins, og Hébéa. Einnig erum við með stóra snyrtivöruverslun með mikið úrval af snyrti- og gjafavörum fyrir dömur og herra. Þar á meðal frá Calvin Klein, Boss, Clarins, Guinot, SLA förðunarvörur, Thierry Mugler og fleira.
|